kollasaeta bloggar
þrjátíogátta, tveggja stráka móðir, ástin hans Palla, tölvunarfræðingur - hvað gerist i hennar lífi .. lesiði það hér


Blogg

25.4.2009

Vorið er komið..


ég er í vinnunni, allt á fullu hérna því gogoyoko.com er að fara í loftið eftir viku, já eftir viku .. díses þetta er svo gaman..
kosningar í dag og ég er ekki búin að kjósa, er eignlega ekki alveg viss ennþá hvað ég ætla að kjósa, ætli það komi ekki í ljós bara þegar ég fer í kjörklefann seinna í dag..
Sól og blíða í höfuðborginni, ég er komin í smá vorfíling enda ekki seinna vænna, vorið er svo sannarlega brostið á með öllu sínu, vortónleikar eftir rúma viku líka, ég hlakka ekkert smá til, enda rosa flott vorprógramm hjá okkur, enda þessi kór ekki þekktur fyrir annað en að rigga upp flottum tónleikum eða eins og stendur í auglýsingunni.."Fyrir hlé mun andi fegurðar og kyrrðar svífa yfir vötnum, en þá verða m.a. flutt lög eftir Elenor Daley og Hildigunni Rúnarsdóttur; Stiklur og Carmen Fratrum Arvalium, og Í grænum mó Sigfúsar Halldórssonar í útsetningu Hildigunnar.
Eftir hlé setur kórinn á sig dansskóna, og flytur meðal annars lagasyrpu (Take the "A" train, Mood indigo, Satin doll og If it ain't got that swing) eftir Duke Ellington, Sway eftir Pablo Beltrán Ruiz og Bewitched, bothered and bewildered eftir Rogers & Hart, auk negrasálma og gospels."

Það er því augljóst að þarna geta allir fengið eitthvað við sitt hæfi og ég get lofað skemmtilegum tónleikum. Ég hlakka allavega rosa til og svei mér ef tilhlökkunin hefur ekki vinninginn yfir stressinu, því ég á víst að syngja sóló, tja, ef það er hægt að kalla það sóló því fyrst syngjum við fjórar og svo verðum við þrjár.. er með smá stress yfir því en eins og ég sagði, tilhlökkunin er meiri..


Miða getiði fengið hjá mér og að venju er um skyldumætingu að ræða :)

Annars erum við í góðum gír á Kleppsveginum, strákarnir mínir blómstra og Pallinn minn er bestur í heimi..
Fór til Hrafnhildar á sumardaginn fyrsta (Já .. GLEÐILEGT SUMAR!) Hún bakaði eplaköku í tilefni þess að hún er búin að taka embættisprófið sem ljósmóðir. Hún stóð sig snilldarvel, enda ekkert nema snillingur þessi systir mín, langbest í þessu eins og öðru sem hún gerir, ég á ekki orð til að lýsa því hvað ég er stolt af henni..
Hrafn Tjörvi fallegastur kom líka ásamt foreldrum sínum.. dhhæs.. hann er bara.. tja, á ekki orð til að lýsa því heldur..
Ég er bara heppnust í heimi, það er ekkert flóknara en það..
jæja, back to work, making miracles..

Skrifað 25.4.2009 kl. 12:02 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.4.2009

rútína..

jæja, ég vissi það.. allt brjálað að gera og hvað gerist þá, jú, ég fer að blogga..
Nýja fína vinnan mín er skemmtileg, mikið að gera, fólkið fínt og allir spenntir og stressaðir yfir því hvað styttist í 1.maí en þá fer gogoyoko.com í loftið.. þið getið fylgst með ef þið viljið, við erum allstaðar, við bloggum hér, tvittum hér, erum með myndir hér og svo erum hér og hér á facebook. Ég hugsa að ég setji þessa linka líka í linkasafnið mitt svona til þægindarauka..
Annars er ég nýkomin frá hinni fögru Nesjasveit, þar sem ég eyddi páskunum með Pallanum mínum, strákunum mínum og öllum hinum í fjölskyldunni. Litli Kollukúturinn minn var skírður því fallega nafni, Hrafn Tjörvi og fengum við Palli þann heiður að vera Guðforeldrar litla Kollukútsins. Við tókum hlutverkið með trompi og gáfum honum Faðirvorið innrammað í skírnargjöf. Hann er svo fallegur þessi litli snúður að ég mér verður orða vant bara .. sveimérþá.. ég er alveg með fráhvarfseinkenni í dag og búin að kíkja oft á síðuna hans, verst að það er ekki hægt að setja lyktina af honum þangað..
Við keyrðum svo heim í gær, með stútfullar vambir af súkkulaði, rjómatertum og góðum mat og nú fer rútínan að bresta á aftur.. kóræfingar á fullu fyrir tónleika 3.maí, en þá verða tvennir tónleikar í Langholtskirku, meira kannski um það seinna..
Með þessu er ég svo að hugsa um að fara að skella mér í ræktina eitthvað svo ég verði ekki eins og rækja með vöðvabólgu og hausverk daginn út og inn..
   

Skrifað 14.4.2009 kl. 17:13 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 176
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 269795
Samtals gestir: 94540
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 21:31:42

Tenglar