kollasaeta bloggar
þrjátíogátta, tveggja stráka móðir, ástin hans Palla, tölvunarfræðingur - hvað gerist i hennar lífi .. lesiði það hér


Blogg

6.9.2009

Ást!

Magnað hvað maður getur elskað þessi börn sín.
Eiður er lasinn, hann sem verður aldrei lasinn en núna er hann alveg hundveikur, með háan hita og hálsbólgu og svona ömurlegt. Hann var að kasta upp núna bara rétt áðan og elsku litla greyjið hennar mömmu sinnar, ég hélt um ennið og strauk hárið og svona, svo fór ég með hann inn í rúm, pakkaði honum inn í sængina sína og strauk vangann.. og horfði á þennan fallega strák sem er bara alveg að verða fullorðinn, allavega svona á kroppinn, hann er svo fallegur, svo yndislegur og góður, ég verð bara svo þakklát fyrir að hafa eignast hann, hann er svo líkur mér, með augun mín .. hann hefur alltaf verið svo fullorðinn í hugsun, við höfum alltaf getað talað um allt og ég elska hann algjörlega skilyrðislaust!!
.. og ég myndi gera allt fyrir hann, hann hefur mig gjörsamlega og algjörlega í vasanum.
Ekki nóg með að ég eigi bara þennan gullmola, heldur á ég annan og ekki er hann síðri.
Birkir minn sem situr hérna hóstandi við hliðina á mér, nýbúinn að búa sér til heimatilbúna hóstasaft, gerir æfingar með pabba sínum. Hann syngur eins og engill, er með hjarta úr gulli og gefur bestu knús sem finnast í heiminum. Hann langar að fara að byrja í ræktinni, enda sterkur og hraustur strákur, gullfallegur enda svo líkur pabba sínum og ég elska hann líka alveg skilyrðislaust!

æ.. fyrirgefiði... ég varð bara eitthvað svo væmin... ég bara elska strákana mína og langaði að tjá mig um það og þá bara geri ég það!
Annars er ég bara hress, er enn að drukkna úr kvefi en er hressari samt.. búin að vinna meira og minna alla helgina, á milli þess sem ég hef hjúkrað sjúklingnum...

Skrifað 6.9.2009 kl. 23:03 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.9.2009

tónlist - I love it

Mammút
Egill S
Lights on the highway
Múm
Sigur rós

Það er frábært að vinna hjá gogoyoko. eitt af því sem gerir það svo frábært er að maður kemst ekki hjá því að kynnast nýrri tónlist. Ekki að það sé einhver kvöð að kynnast nýrri tónlist, heldur er það kannski svolítið þannig með mig að ég festist svolítið í tónlist og hlusta bara á eitthvað ákveðið heillengi.. en á gogoyoko.com þá getur maður bara hlustað á allskonar tónlist frítt..
Mér finnst tildæmis Mammút alveg geeeeeðveik, sjitt hvað ég er að fíla þessa krakka, skil eiginlega ekki hvernig þau gátu farið svona fram hjá mér áður en ég fór að vinna hjá gogoyoko..
Annað sem er algjört uppáhald þessa dagana er Egill S. Nýja platan hans er bara frábær, hún er eitthvað svo kúl og grúví.
Svo náttúrulega Lights on the highway sem eru með útgáfutónleika um helgina og svo Múm.. síðan verð ég eiginlega að segja frá því að ég er farin að fíla Sigur rós mun betur en ég gerði og þurfti nú ekki mikið til þess, ég held meira að segja að ég hafi kallað tónlistina þeirra væl hérna á blogginu einhverntíman.. en það er allt breytt, sjálfsagt þroskamerki :)

Annars er ég að hressast, reddaði geðheilsunni alveg að mæta í vinnuna í dag, kvefið mætti alveg vera betra og svona en you know.. brjálað að gera og þá getur maður ekki verið heima ..


Skrifað 4.9.2009 kl. 16:53 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.9.2009

Bragðlaus og lyktarlaus kjúlli

var að reyna að elda mat, palla fannst það gebba gott en ég finn hvorki bragð né lykt svo að var smá erfitt að elda, mér finnst eiginlega erfiðara að elda án þess að finna lykt, ég er einhvernvegin ekkert oft að smakka það sem ég er að elda, ég er meira í því að hnusa :)
Allavega eldaði kjúllarétt sem ég hafði einhverntíman eldað áður, mundi ekkert eftir uppskriftinni í kvöld, Palla og strákunum fannst þetta geðveikt gott og ég fattaði upp á frábæru nafni til að skíra réttinn og því hendi ég uppskriftinni hingað:

Bragðlaus og lyktarlaus kjúllaréttur fyrir 4

Þetta þarftu:
4 kjúklingabringur
2 paprikkur
lauk
mangochutny
karrý
1stk matreiðslurjóma
ólífuolía
salt
pipar

þetta geriru:
skera lauk í smátt og brúna hann í olíunni
skella 4-5 tsk karrí útí og brúna það með. Passa bara að það brenni ekki
skera bringurnar í litla bita og steikja þá í karrílauksullinu og krydda með salti og pipar
bæta svo paprikkunni útí og láta malla
skella svo matreiðslurjómanum útí og svo að lokum 4 teskeiðum af mangotjöttní

með þessu hafði ég svo hrísgrjón en nennti ekki að skera niður grænmeti

það besta við þetta er að maður byrjar á því að setja upp hrísgrjónin og byrjar svo á kjúllanum og svo er þetta bara reddí þegar grjónin eru reddí..
þetta er svona fínn réttur þegar maður er að flýta sér, hann er þannig séð ódýr, ef maður getur keypt bringurnar með afslætti.. annars finnst mér allt ódýrt ef ég kaupi í matinn fyrir minna en 5 þúsund kall í hvert skipti.. það gerist orðið mjög sjaldan. Það er gjörsamlega óþolandi hvað allt er dýrt! æfokk bara..


annars er ég enn lasin, er orðin geðvond og fúl, öfunda fólk með harðsperrur og langar í vinnuna.. semsagt bara hress.. en sjitt hvað ég er geðvond samt!

Skrifað 3.9.2009 kl. 20:29 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.9.2009

veikindablogg


Er búin að vera að spá í að blogga.. og núna er ég veik og þá blogga ég..
  • ég er semsagt lasin. er frekar fúl yfir því, er alltaf svo eirðarlaus og asnaleg eitthvað þegar ég er heima og get ekki gert neitt. eins og td í gær, þá var ég hundslöpp alveg og stóð varla undir sjálfri mér, en þar sem ég var heima og einhvernvegin allt eitthvað á hvolfi og skítugt, þá fór ég af stað með tuskuna og þurrkaði af í kring um sjónvarpið og ryksugaði allt. Í dag horfði ég á sjónvarpið og hékk í tölvunni og sem betur fer er ég örlítið skárri af þessu kvefi, í gær þá þurfti ég næstum því að vera með bómul í nefinu, svona eins og þegar maður fær blóðnasir vegna þess að það lak svo úr nefinu á mér.
  • Ég hlakka eitthvað svo til þessa dagana, veit samt ekki alveg til hvers, það er eitthvað svo margt að gerast, kórinn minn byrjar hauststarfið í kvöld og ég hefði átt að vera á æfingu .. en þar sem ég er lasin.. svo er svo mikið stuð í vinnunni, mikið í gangi og allt að gerast og það er svo gaman. svo er það ræktin!! já, ég er byrjuð að hita upp, búin að fara þrjár vikur, fyrst tvisvar, svo þrisvar og svo aftur tvisvar í viku.. og hefði farið í þessari viku.. en þar sem ég er lasin... arg!! Mig vantar samt smá stemmingu í þetta, það var svo gaman þegar við vorum á námskeiðunum hjá Kristínu Viktors, þá var maður farinn að þekkja stelpurnar í hópnum og kjaftaði og fékk aðhald frá þeim.. núna er ég að dröslast þetta ein.. mig vantar gymböddís sem nennir í pottinn á eftir og svona.. ég hef náttúrulega Heiðu, en brúnóinn minn er búinn að vera að breyta rútínunni sinni eitthvað og svo er bara líka gaman að hitta fleira fólk :)
  • mamma og pabbi og elli eru 'flutt' í bæinn, mamma verður samt bara hérna með annan fótinn. pabbi og elli eru að fara í skóla. það verður voða gott að hafa þá nær sér og mömmu þegar hún kemur. alltaf best að hafa fólkið sitt hjá sér
  • Allavega, þetta var blogg, veikinda blogg

Skrifað 2.9.2009 kl. 20:51 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 71
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 126
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 270001
Samtals gestir: 94609
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 13:19:00

Tenglar