kollasaeta bloggar
þrjátíogátta, tveggja stráka móðir, ástin hans Palla, tölvunarfræðingur - hvað gerist i hennar lífi .. lesiði það hér


Blogg

6.2.2010

Massa grænmetissúpa Kollu sætu :)

já sæll.. fjúhh hvað ég eldaði góða súpu í kvöld..
Málið er að Birkir ákvað að gerast grænmetisæta þegar hann var búinn að borða afmælismatinn sinn. Ekki það að lambafílleið sem ég eldaði handa honum hafi verið svona vont, heldur er hann búinn að tala um þetta lengi s.s að prófa að vera grænmetisæta.
.. allavega, þetta er er svona smá tvist í matseðillinn hjá okkur, við höfum alveg mikið grænmeti í matinn en höfum kannski ekki gengið út frá því sem aðalatriði, þannig að maður er á fullu að tvista grænmeti og það verður til þess að ísskápurinn er fullur af svona græmetisafgöngum.. og þá varð til þessi súpa!

Massa grænmetissúpa kollu sætu :)

Þetta var alveg handa okkur fjórum og við erum enn að bíða eftir hinum 10.. ef þið skiljið hvað ég meina, soldið mikið af súpu..

Þetta þarftu:

Ég tæmdi ísskápinn af grænmeti. Hann innihélt: 
2 litla lauka
1/2 hvítlauk
1/2 brokkolíhaus
1/4 blómkálshaus
1/2 kúrbít
5 stórar gulrætur
1 risastóra sæta kartöflu
1 litla rauða papriku
1 græna papriku
hálfan flúðasveppadall af sveppum

svo setti ég líka
2 dósir af niðursoðnum tómötum
2 dósir af tómatpúrre
3-400 gr pasta
8-10 grænmetisteningar
svartur pipar
oregano
3 lítrar vatn

Þetta geriru:

Tjoppar allt grænmeti í litla bita.
Setur lauk og hvítlauk og brúnar í olíu í stórum potti
setur allt grænmetið útí og brúnar í nokkrar mínútur
Setur vatn, tómata, tómatpúrre, grænmetisteninga útí og kryddar með Oregano og Pipar.
Lætur suðuna koma upp og lætur sjóða í svona 15-20 mín
Setur pastað útí og lætur sjóða í 15 í viðbót.
og voila.. tilbúið, ferskur parmessan er rifinn ofaní hverja súpuskál.

Að lokum:
Þetta er rugl góð súpa, ég hafði með henni fokkasíuvonnabí brauð.. sem er fokkasía sem er bara úr venjulegu deigi..  og ef þið viljið uppskrift að því þá bara veriði að biðja um hana :)

Skrifað 6.2.2010 kl. 20:49 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.1.2010

13 ára




Hann Birkir minn, litla barnið mitt er hvorki meira né minna en 13 ára í dag. Eins og allir sem hann þekkja vita, að þá er þessi drengur algjör gullmoli. Hann er svo sannarlega með hjartað á réttum stað, gefur bestu knús í heimi og ég elska hann alveg út af lífinu.
Hann fékk steikt eggjabrauð í morgunmat í morgun og í dag ætla ég að fara snemma heim úr vinnunni og dekra við litla barnið mitt sem er orðinn nokkrum milli metrum ( takið eftir .. ég sagði MILLIMETRUM) stærri en ég...
Á myndinni eru þeir feðgar í Dimmuborgum síðastliðið sumar.. flottir maður .. fjúhh...
Til hamingju með daginn elsku Birkir Tjörvi þú ert svo langlanglangbestur og flottastur.

Skrifað 26.1.2010 kl. 8:26 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.1.2010

Bleiki fiskurinn og litla Ísland

Úff.. var að koma úr ræktinni, fór í tímann sem Rakel mælti með, hjá Ágústu.. fínn tími, ég er allavega drullu þreytt. Er að elda grjónagraut mmmm og Eiður fær typpasúpu af því að hann borðar ekki grjónagraut. Keypti líka rúgbrauð og lifrarpylsu.. aldrei að vita nema að ég sjóði líka egg.
En talandi um Rakel, þetta er semsagt Rakel, konan hans Þrándar sem er bróðir hans Gulla kennara sem er pabbi hans Sigga Gunn.. Ég kynntist Rakel semsagt fyrst þegar hún var að vinna í eldhúsinu á Skjólgarði, örugglega fyrir einhverjum tuttugu árum og þar sem ég var á Sillugangi, þá spjölluðum við oft. Síðan hef ég varla hitt hana fyrr en hún byrjaði í kórnum haustið 2008.. og núna vorum við í sama leikfimitíma.. svossem ekkert merkileg saga.. nema að það er svo fyndið hvað Ísland er lítið og leiðir fólks liggja oft saman eftir langan tíma. Kristjana, sem var einusinni hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir á Hornafirði, hún var að byrja í kórnum núna um áramótin, er í 1.sópran og situr fyrir aftan mig!!! Magnað alveg.. !! og og.. var ég búin að segja ykkur söguna af Grétu frænku.. ég hafði aldrei hitt hana, svo byrjaði ég í kórnum, haustið 2006 og þar var hún í sömu rödd og ég en ég vissi ekkert að hún væri frænka mín. Það var ekki fyrr en seinna um haustið að ég er boðuð á ættarmótsnefndarfund. Þá var bara Gréta frænka þar, langamma mín og amma hennar voru systur!!
Magnað!!

En allavega, ætla að setja hérna inn uppskriftina af bleika fiskinum sem ég eldaði í gær, manninum mínum til mikillar ánægju.

Þessi réttur er einn af uppáhöldunum hans Palla míns. Mamma hans eldaði þetta alltaf handa honum þegar hún vildi gefa honum eitthvað gott..
Ég eldaði þetta handa honum í gærkvöldi og núna er ég að búa til grjónagraut, ég held ég sé besta kærasta í heimi :)

Bleiki fiskurinn

Þetta þarftu (fyrir 4 og afgangur daginn eftir):
14-1500 gr ýsuflök, roð og beinlaus
2-3 matskeiðar karrý
1 dós tómatpúrre
ólífuolía
4 hvítlauksgeirar
1 laukur
mjólk
hveiti
Hrísgrjón
Salt

Þetta geriru:
Skerð fiskinn í þægilega bita og veltir honum uppúr hveiti og 1msk karrýi og steikir hann svo aðeins á pönnu í ólífuolíu og saltar aðeins yfir. Ef það er afgangur af hveitikarrýinu þá er gott að geyma það og nota það í sósuna á eftir.
Maður þarf ekkert að steikja hann í gegn, bara svona loka honum. Fiskurinn er svo tekinn af pönnunni og lagður til hliðar.

Sósan:

Hún er gerð svona:
Laukurinn er skorinn smátt og steiktur á pönnunni í ólífuolíu.
Karrýið er sett útí og látið hitna með lauknum. Næst er tómatpúrre bætt við og þetta allt hrært saman og að lokum er svona 2-3 msk af hveiti bætt útí og allt hrært í eina klessu (hér er tilvalið að nota afganginn af karrýhveitinu).
Að lokum er mjólkinni bætt útí og búin til sósa :) sem er svo smökkuð til með salti.
Þegar sósan er farin að malla þá er fiskinum settur útí og allt látið sjóða saman i smá stund.
Þetta er svo borið fram með hrísgrjónum og borðað með bestu lyst.

Að lokum:
Palla finnst best að hafa sósuna vel þykka, helst þannig að hún renni varla.. en mér finnst hún betri þunn, þannig að stundum hef ég hana þykka og stundum þunna.. oftast þykka samt :)

    


Skrifað 21.1.2010 kl. 18:51 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.1.2010

Afsakanir endalaust alltaf..

Hey
Sit hérna í róleheitunum í vinnunni, fátt eins notalegt og að mæta hingað eldsnemma á morgnanna, í myrkrinu, fá sér kaffibolla, kíkja á netið og sjá hvað mönnum liggur á hjarta eftir gærkvöldið og nóttina.. Í dag eru allir að missa sig yfir jafteflinu í handboltanum í gær, ég er nú bara alveg silkislök yfir þessu, efast ekki um að strákarnir eru að gera sitt besta .. ég myndi allavega ekki nenna að standa í öllum þessum æfingum og svona án þess að gera mitt besta þegar á hólminn væri komið..
Annars er ég bara hress, skellti mér meira að segja í spinning í ræktinni í gær, var nokkrum sinnum næstum því búin að gubba, þetta var svo erfitt, fyrst þegar kennarinn sagði "jæja, þá erum við hálfnuð með upphitunina...."!!! já ég er er massa formi, það er greinilegt.
Ég bjóst nú samt alveg við því að þetta yrði erfitt, er búin að eyða tveimur vikum í að peppa mig upp í að fara og í gær var ég komin með afsakanirnar alveg í steríó og var eiginlega búin að sannfæra mig um að ég bara gæti alls ekki farið, ég væri svo þreytt.. eða var það hausverkur.. allavega ég fann eitthvað sem ég afsakaði mig með..  en svo las ég þetta og komst að því að ég væri bara letihaugur!!
Þannig að .. nú byrjar þetta, ég hef ekki neina einustu afsökun, allt að vinna og engu að tapa!! Ef ég fer ekki þá er ég að deyja í öxlunum, með hausverk og þarf að sitja í bílnum þegar Palli labbar á Esjuna í sumar í staðin fyrir að labba með!! Ef ég fer ekki, þá kemst ég aldrei í dásamlega pottinn í Hreyfingu!!  Ég hef allt að vinna og engu að tapa.. nema kílóum, þó ég sé ekkert endilega að þessu til þess að létta mig, þá má alveg minnast á það að ég er búin að bæta á mig einhverjum fimm kílóum síðan ég hætti að mæta reglulega í ræktina.. það er bara of mikið, og þar sem ég vil getað borðað allt sem mig langar í án þess að kaupa mér endalaust stærri föt þá þarf ég að hreyfa mig.. þetta eru ekki geimvísindi.
Og svo bara líður mér miklu betur, líður betur í sálinni og í kroppnum..
Ég var samt skúffuð í gær, þegar ég ætlaði að láta líða úr mér eftir puðið á hjólinum -þá var potturinn ískaldur!!! Mér finnst nú alveg lágmark að þegar maður er að borga marga þúsundkalla á mánuði og mætir aldrei, þá er það það minnsta sem þau geta gert er að hafa pottinn í lagi þegar maður loksins lætur sjá sig :) Potturinn er nefninlega gulrótin mín, því þegar ég er alveg við það að deyja, þá hugsa ég um hvað það verður gott að fara í pottinn á eftir. Og þar sem ég gerði þegjandi samkomulag við sjálfa mig þannig að ég mun aldrei fara í pottinn án þess að puða fyrst þá virkar það mjög vel.. Þessi pottur er algjör dásemd.
Ég ætla að mæta á morgun, er að hugsa um að sprófa að fara í þrektíma í hádeginu og ef ég næ því ekki, þá er það þrek og þol hjá Eyrúnu ef ég næ númeri. Ef ég næ ekki númeri.. þá bara lyfti ég eða eitthvað.. ég ætla allavega í gymmið!!

Skrifað 20.1.2010 kl. 9:32 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.1.2010

Kollubollu kjötbollur með tómattvisti og hveitilengjum


úff.. allir á dekk og út með bátana... það er bara ekkert öðruvísi! Ég eldaði gjöööhhhhheeeeðveikan mat í kvöld, hann var svo góður að hann verðskuldar blogg, það er bara ekkert öðruvísi..
Allavega.. Birkir fékk að velja af því hann stóð sig svo vel í prófunum og hann bað um þetta. Þetta er kannski ekki fljótlegasti réttur sem ég hef eldað enda byrjaði ég um hálf 7 og var búin að borða að verða 9, svolítill Hraunhóls stíll á þessu semsagt..
En hérna er þetta:


Kollubollu kjötbollur með tómattvisti og hveitilengjum..

Þetta þarftu:


Nautahakk, svona tvo pakka (8-900 gr)
1 poki mozzarrilla ostur, rifinn
1 bolli brauðrasp
2 egg
1/2 l matreiðslurjómi

salt
pipar

hvítlaukskrydd
ítölsk kryddblanda
12 tómatar
ferskt basillikum

hálfur hvítlaukur
ólífuolía
5-700 gr spaghettí


Þetta geriru:


Kollubollukjötbollur

Blandar hakki, osti, raspi, eggjum og matreiðslurjóma í skál, kryddar með salti, pipar, hvítlauk og ítölsku kryddblöndunni.
Hrærir þessu saman þar til að það verður að fallegu bleiku klessudeigi.
Setur filmu yfir skálina og skellir þessu inn i ísskáp og leyfir þessu að taka sig svona á meðan þú græjar tómatsósuna.
Næst býrðu til bollur úr deiginu, ég hef þær svona svipaðar og gólfkúlur að stærð, notaeina skeið og svo lófann til að gera þetta voða flott.
Síðan steikir maður bollurnar á báðum hliðum, samt ekki í gegn,
(semsagt brúnar á hliðum og bleikar inní svona eins og kjötbollurnar urðu stundum hjá afa í gamladaga..hehe.. ). Bollurnar eru svo settar í eldfast mót, álpappír ofaná og bakaðar í ofninum á 200° í svona 20-30 mín

Tómattvist

Tómatarnir eru afhýddir með því að láta þá liggja í sjóðandi vatni í smá stund og hýðið svo pillað af.
Hvítlaukurinn er tjoppaður í smátt, settur í pott ásamt slurk af ólífuolíu og látinn malla í smá stund. Afhýddir tómatar eru skornir í bita og settir útí og látnir sjóða í svona klukkutíma.
Smátt skorin fersk basillika er svo sett útí rétt áður en tómattvistið er borið fram

Hveitilengjur
Spaghettí soðið í saltvatni með ólífuolíu. :)




Ok, sko, ég byrja alltaf á því að sjóða vatn og hella yfir tómatana. Það bíður svo á meðan ég græja kjöthakkdeigið, sem fær svo að taka sig á meðan ég græja tómattvistið, sem fær svo að sjóða á meðan ég steiki bollurnar sem bakast svo á meðan ég sýð spaghettíið.. þetta er voða svona eitt leiðir af öðru matseld :)
þetta er alveg rosalega gott -tómatsósan, nei ég meina tómattvistið (miklu flottara nafn heldur en tómatsósa, voða svona kokkalegt..), er algjört æði, sem kemur mér nokkuð á óvart þar sem ég borða ekki ferska tómata.. ég er nú reyndar farin að halda að það séu bara stælar í mér. Svo má hún líka bara sjóða og sjóða og sjóða .. þar til allt annað er reddí )
Svo er náttúrulega ferskur Parmessan útá punkturinn yfir iið, svona þegar maður á hann..
örugglega voða gott líka að hafa sallat og svona, brauð jafnvel og rauðvín.. en hey, það er nú bara þriðjudagur..

fjúhh.. gjööööhhheeeðveikt gott sko..
Svona leit þetta út á diskinum mínum..

    

Já og Birkir tók myndirnar...


 

Skrifað 12.1.2010 kl. 21:53 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.1.2010

þrettándinn

er mætt í mína elskulegu vinnu, hlusta á Bloodgroup eins og enginn sé morgundagurinn, Dry Land er algjörlega frábær plata, kom mér skemmtilega á óvart, því þessi tegund af músík hefur kannski ekki verið alveg minn tebolli, enda drekk ég eiginlega aldrei te (!) .. allavega, platan er æði, einhvernvegin svona ljúfur stuðbolti, maður dinglar sér geðveikt, en stuðið er samt ekki læti þannig að maður getur alveg hlustað á þetta með fyrsta kaffibollanum á morgnanna ef þið skiljið mig.

þrettándinn í dag, mig langar á brennu niðrá hestavelli í kvöld, ég man eftir því þegar við Ragga á Brekkubæ leystum Jólasveinana af einu sinni á þrettándanum, enda þeir greyjin á leiðinni heim, ég sá ekkert fyrir skeggi og hári en best fannst mér þegar ein lítil stelpa sagði við mig, jólasveininn,  - heyrðu jólasveinn, afhverju ertu með eyrnalokk??
tjahh, ekkert smá hippogkúl jólasveinn maður :)
Allavega mér langar á brennu og hlusta á eirík syngja ólafur reið með bjöhhhööörguuuum frammmmmm .. en ég er víst í Reykjavík en ekki í Nesjunum, ætla því að sjóða hangikjöt í kvöld og fá mér Malt og Appelsín, grænar baunir og uppstúf með..

já, hún bloggar eins og vindurinn þessi elska..

Skrifað 6.1.2010 kl. 9:40 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.1.2010

Fokk!!

ég er orðin þunglynd af öllu þessu fjandans volæði, þessu eilífa rifrildi!!
getur fólk ekki bara verið umburðalint og knúsað hvort annað?? heldur stjórnarandstæðan virkilega að þetta myndi ganga betur hjá þeim??
þú veist, afhverju hættir þetta fólk ekki í sandkassaleik og bara leysir þetta mál? ég bara skil þetta ekki.. og á meðan þarf ég að borga 170 kall fyrir vesælan skyr.is drykk, 1500 kall fyrir kíló af ýsu og bara fokk!!
æji Fokkkkkkkk!!!!
Og Bjarni ben, alveg þoli ég ekki manninn!! og ekki heldur þarna bryndísi eða birgittu eða hvað hún heitir þarna..

FOKK!! mér langar bara að detta íða!!

Skrifað 5.1.2010 kl. 19:57 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.1.2010

2010


Það er komið nýtt ár, 2010. Magnað alveg, tíminn líður svo hratt að maður að það tekur ekki að vera að stressa sig á hlutunum. Ég er tildæmis enn á sumardekkjum, enda tekur því ekki að setja vetrardekkin undir því það verður komið sumar áður en maður veit af ..
Allavega, ég var að hugsa um að blogga kannski eitthvað, finnst hálf leiðinlegt að allt sé steindautt hérna á þessu annars ágæta bloggi, hef ekkert sett hingað inn síðan við Palli fórum í rómantíska kærustuparaferð til Parísar í haust, það var algjörlega æðisleg ferð enda Palli minn náttúrulega svo ótrúlega skemmtilegur félagsskapur..
Allavega, það var þá en núna er ég mætt í vinnuna á nýju ári, það verður enginn annáll skrifaður fyrir árið 2009, ég bara nenni því ekki og man ekkert hvað gerðist á þessu ári því ég hef ekkert bloggað, en svona þegar ég hugsa um það þá eru nokkrir hápunktar..
 - Hrafn Tjörvi fæddist, fallegi brúnóinn minn
 - Palli varð 25ára.. plús svona sirka 15 ár..
 - ég byrjaði að vinna hjá gogoyoko, þokkalega gott múv hjá mér
 - strákarnir mínir eru ekki lengur krakkar heldur unglingar
 - fór í útilegu í mígandi rigningu og roki
 - elli bró útskrifaðist
 - hrafnhildur útskrifaðist
og bara svona allskonar..

Árið 2010 verður massa ár! ég er allavega búin að ákveða það. Ég ætla að fara að hreyfa mig aftur, kannski ég fari að hlaupa úti með Pallanum (ég þarf allavega að taka mig verulega á til að halda í við hann svo við getum farið saman í göngutúra á fjöll næsta sumar) og bara allskonar..
en fyrst og fremst ætla ég að láta mér líða vel og vera dugleg að knúsa kallana mína
vona að árið verði ykkur gott krúttin mín

 

Skrifað 4.1.2010 kl. 9:48 af kollasaeta

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 81
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 172
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 263065
Samtals gestir: 93000
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 12:33:54

Tenglar